Mat á frammistöðu
Þegar lagt er mat á frammistöðu eða framfarir nemenda, með hliðsjón af markmiðum skólans, skal fyrst og fremst miðað við þann nemanda sem í hlut á. Þá eru metnar framfarir hans, dugnaður og árangur miðað við hans eigin hæfileika og getu.
Nemendur í 3. – 10. bekk eru virkir í matinu og meta sig sjálfir í hverjum þætti þess. Nemendur vinna sjálfsmatið heima með aðstoð foreldra.
Sjálfstæði og ábyrgð
Nemandi:
- sýnir áhuga og tekur frumkvæði
- vinnur sjálfstætt
- tekur ábyrgð á námi sínu
- vinnubrögð
Virðing og samhugur
Nemandi:
- ber virðingu fyrir umhverfi
- sýnir samstarfshæfni
- ber virðingu fyrir skólafélögum
- ber virðingu fyrir starfsfólki
Uppfært 08/2016