Efni fyrir kennara

Á bókasafninu er að finna sýniseintök af flestum kennslugögnum sem Menntamálastofnun gefur út. Einnig sýnisefni frá öðrum útgefendum sem nýst gæti í kennslu. Á heimasíðu Menntamálastofnunar: mms.is er hægt að gerast áskrifandi að tölvupósti með tilkynningum um nýtt námsefni.
Kennsluleiðbeiningar og kennaraeintök eru lánuð út af safninu og skráð í Gegni.
Talsvert er til af fræðiritum um uppeldis- og menntamál.