Starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi

Innan Grunnskólans í Borgarnesi er að finna hæft starfsfólk í fjölbreyttum störfum. Við leggjum áherslu á í öllu okkar starfi með nemendum að efla þá sem einstaklinga, gera þá hæfa til að vinna með öðrum og til að taka þátt í lýðræðisþjóðfélagi sem stöðugt er að taka breytingum. Við leggjum jafna áherslu á siðvit, verkvit og bókvit nemenda. Við viljum sjá ábyrga einstaklinga, sem bera virðingu jafnt fyrir sjálfum sér og umhverfi sínu, sem láta sér annt hver um annan, geta unnið með öðrum, hafa dug til að standast þrýsting neikvæðra áhrifa og bera virðingu fyrir mismunandi sjónarmiðum og einstaklingsmun. Við leggjum okkur fram við að vera fyrirmynd í okkar störfum.

Starfsmannasáttmáli Grunnskólans í Borgarnesi

Gleði, jákvæðni og góður andi,
gagnkvæm virðing, líka hrós.
Traust og umhyggja ætíð standi,
einingin skapar birtu og ljós.

Uppfært 07/2014