Formáli
Stefnu og verklag skólans á að birta með tvennum hætti. Annars vegar að birta almenna stefnumörkun í skólanámskrá (það er hægt að nálgast hana á heimasíðu skólans) og hins vegar eru upplýsingar, sem eru breytilegar frá ári til árs, birtar í árlegri starfsáætlun. Upplýsingar sem eiga heima í starfsáætlun skólans er að finna í þessu plaggi og á heimasíðu skólans (grunnborg.is).
Í árlegri starfsáætlun kemur fram hvernig þeim 180 kennsludögum, sem skóli hefur til ráðstöfunar, er varið. Í starfsáætluninni eru birtar upplýsingar um:
-
- stjórnskipulag skólans
- starfsfólk
- skólareglur
- tilhögun kennslu
- val nemenda í 8.–10. bekk
- skólaráð, foreldrafélag og nemendafélag
- viðfangsefni innra mats
- upplýsingar um stoðþjónustu
- upplýsingar um tómstundastarf og félagslíf
- símenntunaráætlun
- rýmingaráætlun
- viðbrögð við vá, s.s. veikindafaraldri, óveðri, eldgosi, jarðskjálftum
- annað sem varðar starfsemi skólans ár hvert, m.a. hagnýtar upplýsingar um opnunartíma skólans, viðveru sérfræðinga, mötuneyti, forföll og leyfi