Talmeinafræðingur

Tveir talmeinafræðingar starfa hjá Borgarbyggð. Næsti yfirmaður þeirra er sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Talmeinafræðingar leggja fyrir málþroska- og framburðarpróf, en sinna ekki þjálfun. Ráðgjöf til foreldra og kennara er veitt á skilafundum, þegar niðurstöður greininga liggja fyrir.

Skrifleg beiðni undirrituð af foreldrum þarf að liggja fyrir áður en nemendum er vísað til talmeinafræðings. Slíka beiðni, tilvísunarblað, má nálgast hjá deildarstjóra sérkennslu.

Uppfært 01/2020