Skýr mörk

Stefna skólans er að:

  • Tryggja öryggi.
  • Hjálpa einstaklingum að læra af þeim mistökum sem þeir gera varðandi hegðun og samskipti.
  • Hjálpa þeim að líta í eigin barm og ná betri stjórn á eigin hegðun.
  • Styrkja þá í að takast á við mistök sín á uppbyggilegan hátt.

Hegðun er annars vegar ásættanleg og eðlileg og hins vegar óásættanleg. Þarna á milli er dregin lína, sem við köllum skýru mörkin.

Æskileg og eðlileg hegðun
Nemandi mætir ávallt stundvíslega og vel undirbúinn í skólann, reiðubúinn til að takast á við verkefni dagsins. Hann gengur vel um skólann og sýnir sjálfum sér og öðrum virðingu með framkomu sinni, orðum og gjörðum.

Óæskileg hegðun

Nemandi veldur truflun á skólastarfi, mætir of seint og/eða illa undirbúinn. Hann gengur illa um eigur skólans og gætir ekki orða sinna.

Tvær leiðir eru til að vinna með nemandanum:

Uppbygging – fylla út uppbyggingaráætlun og ljúka málinu á staðnum án frekari eftirmála.

Viðurlög – fer eftir broti en geta verið eftirfarandi:

  • Senda til umsjónarkennara/skólastjórnenda.
  • Aðskilnaður frá bekk.
  • Samband við foreldra.
  • Fundur.
  • Samningur.
  • Senda heim.

Óásættanleg hegðun

Nemandi vinnur viljandi skemmdarverk, beitir grófu andlegu og/eða líkamlegu ofbeldi. Nemandi gerist sekur um vopnaburð eða notkun fíkniefna.

Viðurlög við óásættanlegri hegðun:
Ávallt skal vísa nemanda til umsjónarkennara/skólastjórnenda
Hafa samband við foreldra og láta sækja nemanda.
Gera uppbyggingaráætlun með foreldrum þegar nemandi kemur aftur.

Uppfært 11/2021