Sagan um Benjamín dúfu og vini hans er ein vinsælasta barnabók síðari tíma og hefur skilið eftir sig djúp spor hjá nokkrum kynslóðum íslenskra lesenda. Hún frá viðburðaríku sumri í lífi fjögurra vina.
Þeir stofna reglu Rauða drekans og Róland dreki, Andrés örn, Baldur hvíti og Benjamín dúfa hafa nóg fyrir stafni í baráttu sinni gegn ranglæti. Lífið virðist óslitið ævintýri en það koma brestir í vináttuna og kaldur raunveruleikinn ryðst inn í líf þeirra.
Fyrir utan Íslensku barnabókaverðlaunin 1992 hlaut Friðrik Erlingsson ýmsar aðrar viðurkenningar fyrir Benjamín dúfu. Bókin hefur komið út á fjölda tungumála og hlotið afar lofsamlega dóma. Kvikmynd sem byggð er á sögunni var frumsýnd árið 1995 og hefur hún hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.