Í tilefni af vitundarviku ADHD samtakanna verður boðið upp á opinn fund í Mennta- og menningarsal Borgarbyggðar þriðjudaginn 21. september kl. 20:00. Aðangur er ókeypis og öllum opinn.
Fyrirlesari er Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur á skólaskrifstofu Reykjanesbæjar. Gylfi hefur sérhæft sig í ADHD röskunum, einkennum þeirra og hagnýtri rágjöf fyrir aðstandendur og skóla.
Fyrr um daginn heldur Gylfi Jón fyrirlestur fyrir starfsfólk skólans kl. 14:00, af þeim sökum verður allri kennslu hætt kl. 13:45 og skólabílar munu fara frá skóla kl. 13:55.