Frá Ljósmyndastofunni Mynd

Ritstjórn Fréttir

Minnum á myndatöku hjá Grunnskólanum í Borgarnesi

Myndataka fer fram miðvikudaginn 1. febrúar

Allir myndaðir í 1.- 4.-7. og 10. bekk

Við myndum hópmyndir af viðkomandi bekkjum, einstaklingsmyndir af öllum í viðkomandi bekkjum. Þegar þessu er lokið fara viðkomandi myndir inn á vef ljósmyndastofunnar, með aðgangslykli skólans, þar getur fólk skoðað, valið og pantað. Hverjum og einum er síðan frjálst að kaupa eftir hans / hennar hentugleik. Engin greiðsla fer fram áður og engin innheimta á sér stað í skólanum, eingöngu um leið og pantað er á vefnum. Frjálst val.

Hópmynd hjá okkur kostar það sama og undanfarin ár, kr: 2500.- hún er í stærðinni 20x25cm með nöfnum allra sem á myndinni eru.

Algengasta myndapöntun er sú sama og var í fyrra og kostar það sama núna kr: 2000.- í henni er innifalið eftirfarandi 1. mynd 13x18cm, 1.mynd 9x12cm og síðan fjórar passamyndir.

Vinsamlegast athugið að vefurinn er ljósmyndavefur og öllum sem hafa aðgangsorð skólans opinn.

Eftir myndatökuna tekur við vinnsla á myndunum, hún getur tekið tvær vikur, lykill vegna skólans verður sendur öllum þegar myndirnar eru tilbúnar á vefnum.

Með kveðju

Fh. Mynd ljósmyndastofu

Bjarni Jónsson