Miðvikudaginn 16. maí verður hjóladagur í skólanum, hjá nemendum í fjórða til áttunda bekk. Nemendur eru hvattir til að koma á hjólum í skólann þennan dag, hjóla á gangstéttum og vera með hjálma. Þennan morgun verður gangbrautarvörður við gangbrautina hjá leikskólanum Klettaborg.
Þrautabrautin verður staðsett á planinu við Íþróttamiðstöðina og eru nemendur beðnir um að geyma hjólin sín vestan við sundlaugina (á milli sundlaugar og vallar).
Nemendum og foreldrum er bent á að skoða vel leiðbeiningar á bakhliðinni á síðustu Vikufréttum ( sjá http://grunnborg.is/upplysingar/vikufrettir).
Nemendur mæta við Íþróttamiðstöðina samkvæmt eftirfarandi áætlun:
o Fjórði bekkur kl. 9:00.o Fimmti bekkur kl. 10:00o Sjötti bekkur kl. 11:15o Sjöundi bekkur kl. 12:10o Áttundi bekkur kl. 13:20