Í fimmta sinn efnir Héraðsbókasafn Borgarfjarðar til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Tímabil sumarlesturs er frá 10. júní – 10. ágúst.
Markmiðið með verkefninu sem þreytt hefur verið víða um land með góðum árangri er: Að nemendur viðhaldi og þjálfi ennfremur, þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.
Verkefnið er þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu.
Börn á þessum aldri skrá sig í sumarlesturinn á bókasafninu frá og með 10. júní og fá þá um leið skjal þar sem skráðar eru þær bækur sem viðkomandi barn les á ofangreindu tímabili. Þegar bók er aftur skilað á bókasafnið er merkt við hvern titil og nafn þátttakenda sett á miða í pott sem dregið verður úr í lok sumars á sérstakri uppskeruhátíð í Safnahúsi þar sem einhverjir heppnir lestrarhestar hljóta vinning.
Opið verður á bókasafninu í sumar alla virka daga frá 13-18.
Öll börn geta gerst lánþegar. Æskilegt er að þau yngstu komi í fylgd fullorðinna fyrstu skiptin. Við hlökkum til að sjá sem flesta krakka á bókasafninu í sumar,
starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar.