Safnahúsið og Tónlistarskólinn bjóða til tónleika
þann 13. nóvember næstkomandi. Nokkrir nemendur Tónlistarskólans flytja frumsamið efni byggt á þulum eftir borgfirskt ljóðskáld og börn úr 5. bekkjum grunnskóla í Borgarfirði og nágrenni sýna ljóð sem þau hafa samið á
undanförnum vikum undir leiðsögn kennara.
Dagskráin er haldin í tengslum við Dag íslenskrar tungu. Tónleikarnir verða í salnum á neðri hæð Safnahúss og hefjast kl.18.00. Þeir standa í um hálfa klukkustund, svo verður ljóðasýningin opnuð á efri hæðinni. Kaffiveitingar í lok dagskrár.

Allir velkomnir!
Safnahús Borgarfjarðar
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
Safnahús Borgarfjarðar
Tónlistarskóli Borgarfjarðar