Við lok þessara annar er uppgjör á vinnu nemenda á önninni. Við leggjum áherslu á að meta frammistöðu og framfarir hvers nemenda. Matið tekur tillit til getu hvers og eins og eru í samræmi við markmið skólans.
Nemendur í 3. – 10. bekk eru virkir í matinu og meta sig sjálfir í hverjum þætti þess. Það er ósk okkar að nemendur gangi frá sjálfsmatinu heima með aðstoð foreldra og verði búnir að því fyrir föstudaginn 15. febrúar.
Í fréttatilkynningunni eru eyðublöð sem auðvelda nemendum og foreldrum að ganga frá matinu og í leiðbeiningunum er fólk leitt áfram hvernig fara skuli inn í Mentor.
Ef foreldrar lenda í vandræðum og þurfa aðstoð við innskráningu eða matið sjálft geta þeir haft samband við Hilmar aðstoðarskólastjóra á netfanginu hilmara@grunnborg.is eða í síma 4371208.
Þeir sem hafa glatað lykilorðinu sínu geta nálgast nýtt inn á mentor.is.

Dagsetningar vegna annarskila
21.01. „Kerfið“ sett upp.
21.-24.01. Kennarar yfirfara sinn hluta.
25.01. Kennara og nemendur geta byrjað að vinna í matinu.
04.02. Fréttatilkynning send til foreldra.
12.02. Umsjónarkennarafundur.
13.02. Skipulagsdagur – kennarar ljúka við matið.
15.02. Síðasti dagur fyrir nemendur að ljúka við sjálfsmatið.
19.02. Opnað fyrir foreldra að sjá niðurstöður matsins.
19.-21.02.Nemendur og foreldrar fara yfir niðurstöður matsins og undirbúa foreldraviðtalið.
22.02. Foreldraviðtalsdagur.