7. bekkur í skemmtiferð á Akranesi

Ritstjórn Fréttir

Miðvikudaginn 23. október, lögðu nemendur úr 7. bekk land undir fót og héldu á Akranes, þar sem árgangurinn tók þátt í Kapphlaupinu um lífið í Akraneshöllinni. Að hlaupinu stóð Barnaheill-Save the Children á Íslandi, en það er boðhlaups maraþon, sem ætlað er að vekja athygli á og berjast gegn barnadauða í heiminum.
Lagt var upp með að allir tækju þátt og að ferðin væri skemmtiferð í leiðinni. Krakkarnir okkar stóðu sig með miklum sóma, voru dugleg, jákvæð og krafmikil. Að hlaupi loknu var boðið upp á pizzu-veislu. Síðan var lagt land undir fót og gengið á Safnasvæðið að Görðum þar sem Jón Heiðar Allansson tók á mótið hópnum og var með leiðsögn um Safnaskálan og Byggðasafnið. Það vakti mikla gleði á Íþróttasafninu að sjá kunnuleg andlit m.a. frá Borganesi. Það voru glaðir og stoltir krakkar sem komu svo heim í Borgarnes að ferð lokinni.