3. bekkur á þjóðahátíð

Ritstjórn Fréttir

Sunnudaginn 27. október 2013 stigu nemendur 3.bekkjar á stokk og sungu á „Þjóðahátíð“ sem haldin var í sal Menntaskóla Borgarfjarðar (Hjálmakletti). Nemendur sungu tvö lög, „Zimska pesma“ sem er serbneskt lag um veturinn og „Meistari Jakob“ á sex tungumálum; íslensku, serbnesku, spænsku, tagalog, dönsku og ensku. Nemendur bekkjarins eiga einhver tengsl við lönd þar sem þessi tungumál eru töluð, annað hvort vegna uppruna eða búsetu.
Undanfarnar vikur hafa umsjónarkennari krakkanna, Kristín Einarsdóttir og kennari þeirra í tónlist og leiklist Margrét Jóhannsdóttir séð um æfingar fyrir hátíðina en aðstoð hefur komið víðar að. Serbnesk móðir í bekknum, Vesna Pavlovic aðstoðaði við að fá textann á vetrarlaginu og Maria Socorro Grönfeldt, kennari við skólann aðstoðaði við framburð á tagalog sem er filipiskt mál. Krakkarnir fengu góðar viðtökur og stóðu sig með mestu prýði.