Jólagleði

Ritstjórn Fréttir

Föstudaginn 20. desember hefst skóli kl. 9:00. Skólabíll innanbæjar mun fara kl. 8:40 og 8:55 úr Bjargslandi. Skólabílar úr dreifbýli fara 1 klst. seinna af stað en venjulega.
Stofujól verða kl. 9:00, undir stjórn umsjónarkennara. Kl. 10:20 höldum við niður í íþróttamiðstöð þar sem litlu jólin verða haldin hátíðleg með leik og dansi. Foreldrar eru boðnir velkomnir í íþróttamiðstöðina á þessum tíma til að gleðjast með okkur. Reiknað er með að þessum skóladegi ljúki um 12:00.
Skóli mun svo hefjast að nýju samkvæmt stundatöflu mánudaginn 6. janúar. Starfsfólk mætir til starfa föstudaginn 3. janúar.