Árlegt jólaútvarp félagsmiðstöðvarinnar Óðals og N.F.G.B. verður sent út frá Óðali 8. – 12. desember frá kl. 10:00 – 23:00 alla daga.
Eins og undanfarin ár verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði. Fyrir hádegi verður útvarpað áður hljóðrituðum þáttum yngri bekkja grunnskólans en eftir hádegisfréttir verða unglingarnir með sína þætti í beinni útsendingu.
Handritagerð fór fram í skólanum þar sem jólaútvarpið hefur verið tekið sem sérstakt verkefni í íslenskukennslu, metið til einkunnar.
Hápunktur fréttastofunnar verður eins og undanfarin ár „Bæjarmálin í beinni“ föstudaginn 12. des. kl. 13.00.
Von er á góðum gestum í hljóðstofu þar sem málin verða rædd.
Gestir verða úr atvinnulífinu, íþrótta- og menningargeiranum sem og sveitarstjórn og bæjarstjóri.
Hér má nálgast dagskrá Jólaútvarpsins 2014 njótið vel.