Vegna veikindaforfalla vantar okkur í Grunnskólanum í Borgarnesi starfsmann á bókasafn skólans frá áramótum til vors í 70 – 100% starf.
Leitað er að starfsmanni með háskólapróf sem nýtist í starfi og kostur væri ef hann hefði reynslu af sambærilegu starfi. Einnig þarf viðkomandi að eiga auðvelt með að vinna með öðrum, börnum sem fullorðnum.
Laun og vinnutími samkvæmt kjarasamningum.
Allar upplýsingar um starfið veitir Kristján Gíslason skólastjóri í síma 437-1229 eða GSM 898-4569. (netfang kristgis@grunnborg.is ). Umsóknarfrestur er til 21. desember.
Skólastjóri