
Á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember, buðu þau foreldrum sínum og 3.bekk að hlusta á flutning lagsins. Þessi fallegi texti á vel við í aðdraganda komandi jóla.
Gult fyrir sól, grænt fyrir líf,
grátt fyrir þá sem reka menn út í stríð,
hvítt fyrir börn sem biðja um frið,
biðja þess eins að mega lifa´eins og við.
Er ekki jörðin fyrir alla?
Taktu þér blað, málaðu´á það
mynd þar sem allir eiga öruggan stað,
augu svo blá, hjörtu sem slá,
hendur sem fegnar halda frelsinu á.
Þá verður jörðin fyrir alla.
Olga Guðrún Árnadóttir