Grunnskólinn í Borgarnesi fékk grænfánann afhendann í annað sinn á skólaslitahátíðinni 4. júní. Skólinn getur því flaggað fánanum næstu tvö árin. Skólastjóri og sveitarstjóri fluttu ávörp. Fulltrúi Landverndar flutti einnig stutt ávarp og afhendi svo skólanum fánann. Það var umhverfisnefnd skólans sem er bæði skipuð starfsmönnum og nemendum skólans sem tók við honum og gekk með hann að fánastönginni. Þar var hann dregin að húni við hátíðlega athöfn. Skoða myndir
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
Sjá nánar á landvernd.is