Skólavaktin

Ritstjórn Fréttir

Unglingarnir í Nemendafélagi Grunnskólans í Borgarnesi setja í ár á svið í Óðali leikritið Skólavaktin sem er frumsamið leikrit um líf og starf í Grunnskólanum Borgarnesi. Unglingarnir sömdu handritið sjálf og taka þarna sérstaklega til skoðunar ávana og kæki kennara sinna og gera að þeim góðlátlegt grín.
Það er Eygló Lind Egilsdóttir sem leikstýrir unglingunum að þessu sinni.
Sýningar í Óðali verða sem hér segir:
Föstudaginn 20. mars kl. 17.00 og 20.00
Sunnudaginn 22. mars kl. 20.00
Mánudaginn 23. mars kl. 17.00 og 20.00
Miðaverð er 1.500 kr. en 1.000 kr. fyrir börn 16 ára og yngri.
Miðapantanir í síma 437-1287 eftir kl. 14.00
Styrkjum unglingana okkar í starfi sínu!