9. bekkur í sóttkví

Ritstjórn Fréttir

Nemendur 9. bekkjar hafa ásamt umsjónarkennurum sínum og öðrum ungmennum af Vesturlandi dvalið Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni frá því á mánudag. Til stóð að hópurinn kæmi heim í dag en vegna COVID smits sem upp kom í búðunum voru allir sendir heim á fimmtudagskvöld. Hópurinn verður í sóttkví til miðvikudagsins 27. október og fer þá í sýnatöku.

„Okkur þykir alveg ótrúlega leiðinlegt að smit hafi komið upp í búðunum. Það var búið að vera svo gaman hjá nemendunum í vikunni og þeim liðið alveg frábærlega vel á Laugarvatni. Engum er um að kenna að svona fór. Við erum búin undir aðstæður eins og þessar og vitum að þær geta áfram komið upp í samfélaginu,‟ segir Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður ungmennabúðanna.

Sigurður segir að um leið og grunur vaknaði um smit hafi verið gripið til varúðarráðstafana og málið unnið í nánu samráði við Almannavarnir og yfirvöld um næstu skref. Þegar niðurstaða úr COVID-prófum lá fyrir á fimmtudagskvöld var tekin ákvörðun um að senda alla nemendurna heim. „Fyrst og fremst er þetta afar leiðinlegt fyrir smitaða nemandann. Ég vona að hann finni ekki mikið fyrir áhrifum smitsins. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að gæta að sóttvörnum okkar og hreinlæti eins og við gerum alltaf,‟ segir Sigurður.