Borgarbyggð greiðir fyrir námsgögn og ritföng

Ritstjórn Fréttir

Byggðarráð Borgarbyggðar staðfesti á fundi sínum 6. júlí bókun fræðslunefndar frá 13. júní um að öllum börnum í grunnskólum Borgarbyggðar verði veitt nauðsynleg námsgögn og ritföng frá og með næsta hausti. Með ákvörðun sinni tekur byggðarráð undir þau sjónarmið að öll börn eigi rétt á grunnmenntun án endurgjalds. Reiknað er með að námsgögn nemenda kosti að jafnaði um 4.000 krónur á nemanda á ári. Í Borgarbyggð stunda 500 nemendur nám í grunnskólum og má því ætla að Borgarbyggð leggi skólunum til tvær milljónir króna í þessu skyni fyrir næsta vetur.