Fjölbreytt efni frá GB á skóladegi 30. mars

Ritstjórn Fréttir

Eftirtaldir 7 þættir úr starfi skólans okkar verða kynntir.

Sæbjörg Kristmannsdóttir fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og henni til fulltingis verða nokkrir nemendur. Sagt verður frá helstu verkfærum uppbyggingarstefnunnar.

Elín Matthildur Kristinsdóttir segir frá Búbblunni og leiðir gesti í sannleikann um hugmyndafræðina að baki þessa úrræðis til eflingar sjálfsmyndar og betri líðanar.

Nemendur úr 7. bekk lesa frumsamin ljóð úr ljóðabókinni Árstíðirnar fjórar sem gefin var út í haust. Halldóra Rósa Björnsdóttir stýrir flutningi en hún hafði umsjón með verkefninu frá upphafi.

Samstarfsverkefni með Bifröst verður kynnt. Kristrún Óskarsdóttir, Andrea Jónsdóttir og Bryndís Hafliðadóttir vinna að viðskiptahugmynd. Hugmynd þeirra miðar að því að búa til vefsíðu þar sem krökkum gefst tækifæri til að viðra skoðanir sínar um stjórnmál og ná jafnvel tengslum við stjórnmálamenn. Stelpurnar kynna þróun verkefnisins frá hugmynd til afurðar. Þær hafa gert nafnlausar kannanir í bekkjum og á facebook og eru í sambandi við aðila varðandi vefsíðugerð og hugsanlegt app.

Teikningar af nýbyggingu grunnskólans verða til sýnis og glærusýning sem sýnir endanlegt útlit hennar mun verða í gangi. Nemendur úr stjórn nemendafélagsins munu kynna framkvæmdirnar.

Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir kynnir IÐN valverkefni á unglingastigi sem unnið er í samvinnu við fyrirtæki í Borgarnesi.

Díana Dóra Baldursdóttir segir frá þróunarverkefni sem unnið er í samstarfi við Menntaskóla Borgarfjarðar. Um er að ræða smíði apps sem les fyrir nemendur og gæti hentað lesblindum.

Fólk er hvatt til að líta við í MB og kynna sér gróskuna í skólastarfi í heimabyggð. Dagskráin verður í Hjálmakletti og stendur frá 13:00 – 15:00.