Gróðursetning

Ritstjórn Fréttir

Nemendur úr 4. og 9. bekk gróðursettu tré síðastliðinn föstudag og er verkefnið unnið í samráði og samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar.

Grunnskólinn í Borgarnesi hefur gróðursett tré á vegum Yrkjusjóðsins allt frá árinu 1992. Fyrstu árin var gróðursett í skógræktargirðingu í landi Borgar en árið 2014 var 10.000 (tíuþúsundasta) tréð gróðursett. Það kom að því að svæðið í landi Borgar var fullgróðursett. Haustið 2020 var fyrst gróðursett í nýtt svæði norðan við land Borgar og sunnan flugvallarins. Í þetta sinn var gróðursett hávaxið birki sem reynist vel vegna þess að gróðusetningarlandið er vel gróið háu grasi. Gróðursettar voru 200 plöntur. Við gróðursetninguna notuðu krakkarnir gróðursetningargeyspur sem þau höfðu gaman af að læra að nota. Gróðursetningarhópurinn taldi 70 nemendur auk kennara og aðstoðarmanna. Hver nemandi gróðursetti því 2 eða 3 plöntur.