Hlutverk foreldra í læsi barna – stutt námskeið

Ritstjórn Fréttir

Stutt námskeið fyrir foreldra og kennara verður haldið þriðjudaginn 4. október næstkomandi. Fjallað verður um einfaldar leiðir til að efla lestraráhuga, lesskilning og lestrarfærni barna á öllum aldri. Sýnd verða myndbönd og gefin dæmi um hvernig setja má upp einfalda leiki sem  örva lestur heima við.

Námskeiðið verður haldið í húsnæði Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Bjarnarbraut 8 og stendur frá kl. 16.30 – 18.30. Leiðbeinandi er Ásta Björk Björnsdóttir, sérkennsluráðgjafi skóla.

Áhugasamir skrái sig á netfangið: annamagnea@borgarbyggd.is