Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:
- Vinnustaðakeppni frá 5. febrúar – 25. febrúar, fyrir 16 ára og eldri
- Framhaldsskólakeppni frá 5. febrúar – 18. febrúar, fyrir 16 ára og eldri
- Grunnskólakeppni frá 5. febrúar– 18. febrúar, fyrir 15 ára og yngri
- Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið
Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum eða í skólanum.
Skráning hefst 22. janúar: www.lifshlaupid.is/innskraning