Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa.
Í Lífshlaupinu eru landsmenn hvattir til þess að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag.
Lífshlaupið stendur fyrir:
Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar.
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar.
Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar.
Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður daglega hreyfingu sína árið um kring.
Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Árangur Grunnskólans í Borgarnesi í Lífshlaupinu 2019 má sjá á meðfylgjandi myndum. Skólinn lenti eins og sjá má í 3. sæti í sínum stærðarflokki og innan skólans var það 5. bekkur sem hreyfði sig mest.

