List fyrir alla er ætlað að velja og miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Stefnt er að því að á tíu ára grunnskólagöngu veiti verkefnið börnum góða innsýn í heim mismunandi listforma. List fyrir alla er á forræði mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Í ár verður boðið upp á dagskrána Músík og sögur. Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari munu flytja dagskrána ásamt Esther Taliu Casey leikkonu í Hjálmakletti miðvikudaginn 7. nóvember. Dagskráin fyrir 1. – 6. bekk hefst kl. 10.10 og 7. – 10. bekkir mæta kl. 11.
Átti Bach 20 börn? Seldi Paganini Skrattanum sál sína fyrir snilldina? Var Chopin franskur eða pólskur, rómantískur eða klassískur?
Voru bara karlar sem sömdu músík? Er hægt að spila „banjó og fiðla“ á fiðlu og gítar? Hvað er banjó? Hver var þessi Dimmalimm?
Svar við þessum og öðrum spurningum fást í Hjálmakletti.
Dagskráin tekur um 30-40 mínútur og og eru áheyrendur leiddir um hina ýmsu kima tónlistarinnar með tali og tónum.
Á milli þess sem tónlistarmennirnir flytja tónlist víðs vegar frá kynnir sögumaður tónskáldin og segir sögur og ævintýri þeim tengd.
Tónlistin er ætluð öllum aldurshópum og sögurnar gætu breyst eða orðið mismunandi miðað við aldur barnanna hverju sinni.
Laufey og Páll hafa starfað saman frá árinu 1986. Þau hafa haldið tónleika víðs vegar um landið sem og erlendis og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Nú bætist Esther Talia Casey leikkona í hópinn og saman ætla þau að segja sögur í tónum og tali.