Fimmtudaginn 31. ágúst verða haldnir miðstigsleikar 5. – 7. bekkja á íþróttavellinum í Borgarnesi. Miðstigsleikarnir eru mót fyrir nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar, Heiðarskóla, Laugagerðisskóla, Auðarskóla, Grunnskólanum í Borgarnesi og Reykhólaskóla. Mótið hefst kl. 10.00 og því lýkur kl. 14.00. Sama fyrirkomulag verður á mótinu og í fyrra. Strákar byrja í kattspyrnu og stelpur í frjálsum og síðan er nesti og skipting. Gert er ráð fyrir að þeir sem eru í mat á hótelinu fái nesti sent niður á völl en aðrir komi með nesti að heiman. Kennarar fylgja sínum árgöngum og aðstoða á mótinu.
Keppt verður í fjórum greinum í frjálsum 60 m og 600 m hlaupi, kúluvarpi og langstökki. Einnig verður keppt í 7 manna fótbolta. Hver skóli má senda fjögur lið, tvö strákalið og tvö stelpulið, með leikmönnum úr 5. – 7. bekk. Hver leikur verður 2×6 mín.