Miðstigsleikar

Ritstjórn Fréttir

Fimmtudaginn 1. september næstkomandi verða hinir árlegu Miðstigsleikar haldnir á íþróttavellinum í Borgarnesi. Miðstigsleikarnir eru frjálsíþróttamót nemenda í 5., 6. og 7. bekk. Þátttakendur koma úr samstarfsskólum á Vesturlandi; þ.e. Grunnskóla Borgarfjarðar, Auðarskóla í Búðardal, Reykhólaskóla, Laugagerðisskóla og Heiðarskóla auk Grunnskólans í Borgarnesi.  Hanna Sigríður Kjartansdóttir og Sigrún Ögn Sigurðardóttir íþóttakennarar sjá um framkvæmd leikanna og fellur hefðbundin íþróttakennsla því niður þann dag.