Ný reglugerð

Ritstjórn Fréttir

Ný reglugerð hefur litið dagsins ljós og nú lítur út fyrir að skólar geti opnað þriðjudaginn 6. apríl án mikilla takmarkana. Stjórnendur skólanna í Borgarbyggð hafa fundað um stöðuna. Aðstandendur nemenda eru beðnir um að fylgjast vel með tölvupósti um helgina ef eitthvað kynni að breytast. Nú er gert ráð fyrir takmörkunum á starfi grunnskóla eins og hér segir:

  • Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
  • Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
  • Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
  • Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
  • Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.

Þetta hefur þau áhrif að skipta þarf nemendum í hólf líkt og hefur verið gert en í öllum tilfellum geta árgangar verið saman í hólfi. Skólastarf verður því sem næst hefðbundið en með 50 manna hámarksfjölda í hólfi. Að öllu óbreyttu hefst skólastarf samkvæmt stundatöflu á þriðjudegi eftir páska eins og skóladagatal gerir ráð fyrir.