Skólasetning

Ritstjórn Fréttir

Grunnskólinn í Borgarnesi verður settur í íþróttahúsinu þann 22.ágúst kl. 10:00. Að lokinni skólasetningu fara nemendur í skólann ásamt umsjónarkennurum sínum.

Skólaakstur verður bæði innanbæjar og úr dreifbýli. Við viljum biðja þá sem ekki ætla að nýta sér akstur úr sveitinni að láta vita í sína bíla.
Áætlað er að innanbæjarskólabíll fari úr Sandvík kl. 9:40. Bílar flytja nemendur heim að lokinni skólasetningu.

Við bjóðum foreldra velkomna á skólasetninguna.

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23.ágúst

Ef einhverjar spurningar vakna hafið þá samband við skrifstofu skólans í síma 433-7400 eða grunnborg@grunnborg.is

Hlökkum til að sjá ykkur