Nemendur GB gróðursetja á nýjan leik

Ritstjórn Fréttir

Fyrsta gróðursetning í framtíðarskógræktarsvæði í nágrenni við Borgarnes var 10. september 2020. Gróðursetningarfólk var úr 9. og 4. bekk Grunnskólans í Borgarnesi, alls um 70 manns. Laufey Hannesdóttir og Friðrik Aspelund tóku á móti hópnum og kenndu réttu handtökin. Svæðið er rétt vestan við flugvöllinn. Þarna voru lögð drög að nýjum Yrkjuskógi Grunnskóla Borgarness en áður hefur skólinn gróðursett í landi Borgar. 268 birkiplöntur voru gróðursettar að þessu sinni. Þá sáu börnin einnig um að gróðursetja 49 stafafurur fyrir björgunarsveitirnar í Borgarfirði Brák, Heiðar og Ok. Þær plöntur eru afrakstur sölu rótarskota sem seldust síðustu áramót.

Grunnskólinn í Borgarnesi gerði árið 1997 samkomulag við staðarhaldara á Borg um að skólinn fengi til umráða svæði til gróðursetningar. Allt til ársins 2015 fóru nemendur í fyrsta, fimmta og tíunda bekk á hverju vori í gróðursetningarleiðangur.  Fullplantað er í svæðið sem skólinn hafði á Borg og því hefur nýtt svæði til gróðursetningar verið tekið í notkun.

Ákveðið hefur verið að gróðursetningin verði vinabekkjaverkefni 4. og 9. bekkja í framtíðinni. Til stendur að finna gott nafn á hinn nýja framtíðarskóg.