Skreytum hús með…

Ritstjórn Fréttir

Grunnskólinn í Borgarnesi tekur þátt í Grænfánaverkefninu sem stuðlar að aukinni umhverfisvitund. Í umhverfissáttmála skólans kemur meðal annars fram að endurnýta og endurvinna skuli það sem hægt er. Áhugi er fyrir því innan skólans að nota endurunnið efni og annað sem til fellur með litlum kostnaði við jólaföndur í skólanum. Af þessu tilefni er nú boðið upp á afskrifaðar bækur og birkikubba á bókasafninu á meðan birgðir endast. Á myndinni má sjá blöð úr gamalli bók sem hefur gengið í endurnýjun lífdaganna og er nú jólatré!