Veðurstofan hefur sent út appelsínugula viðvörun vegna veðurs sem á að skella á upp úr hádegi á morgun, þriðjudag. Ef spáin gengur eftir má búast við að heimferð nemenda verði flýtt.
Í verklagsreglum Borgarbyggðar um óveður kemur fram að skólabílstjórar leggja mat á aðstæður og endanleg ákvörðun um akstur eða niðurfellingu á skólaakstri er á ábyrgð þeirra og skólastjórnenda.
Í verklagsreglunum kemur einnig fram að foreldrar geta metið aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá skólayfirvöldum. Skulu þeir þá tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilegar fjarvistir.