Strákurinn í röndóttu náttfötunum

Bruno, sem er níu ára þýskur drengur í síðari heimsstyrjöld, veit ekkert um helförina eða grimmdarverk Þjóðverja. Dag einn flytur fjölskylda hans úr húsi þeirra í Berlín og upp í sveit þar sem hann hefur engan til að leika við.

Í sveitinni kynnist hann Shmuel; strák sem lifir undarlegu lífi handan girðingar og klæðist þar að auki röndóttum náttfötum – eins og reyndar allir hinum megin gaddavírsins. Vinátta Brunos og Shmuels dregur dilk á eftir sér og hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Bókin hefur notið mikilla vinsælda víða um heim og árið 2008 var frumsýnd kvikmyndin The boy in the striped pajamas.