Sjálfstæði - ábyrgð - virðing - samhugur
Grunnskólinn í Borgarnesi - Sjálfstæði - ábyrgð - virðing - samhugur

September, 2019

30sept10:0012:00Ólympíuhlaup ÍSÍí Borgarnesi

Nánari upplýsingar

Norræna skólahlaupið hefur farið fram í grunnskólum landsins óslitið frá árinu 1984 og lengstan hluta þess tíma verið í umsjón ÍSÍ. Á síðustu árum hefur Ísland verið eina þátttökuþjóðin á Norðurlöndunum og nafn hlaupsins því ekki endurspeglað verkefnið. ÍSÍ hefur því ákveðið að breyta nafni hlaupsins og varð Ólympíuhlaup ÍSÍ ofan á. Markmið hlaupsins er að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Nemendur í Borgarnesi hlaupa þann 30. sept. og geta valið á milli tveggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km og 5 km.

Miðstig hleypur kl. 10
Yngsta stig hleypur kl. 10:40
Unglingastig kl. 11:20

Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt. Mjólkursamsalan, MS, hefur frá upphafi styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og mun halda því áfram og samstarfsaðili að þessu verkefni er eins og áður Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands.

Hlaupið er styrkt af verkefninu European Week of Sport og verða þrír þátttökuskólar sem ljúka hlaupinu fyrir 30. september og skila inn upplýsingum til ÍSÍ dregnir út. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Þeir skólar sem ljúka hlaupinu eftir 30. september geta eftir sem áður skilað inn upplýsingum og fengið send viðurkenningaskjöl, en gert er ráð fyrir að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok 2019.

Meira

Klukkan

(Mánudagur) 10:00 - 12:00

Staðsetning

Borgarnes

Skipuleggjandi

Grunnskólinn í Borgarnesi

  • Fannst þér síðan hjálpleg ?
  •    Nei
Grunnskólinn í Borgarnesi
433-7400
X
X