Sjálfstæði - ábyrgð - virðing - samhugur
Grunnskólinn í Borgarnesi - Sjálfstæði - ábyrgð - virðing - samhugur

Október, 2019

10okt14:0015:00Velkomin heimLeiksýning í boði Þjóðleikhússins

Nánari upplýsingar

Þjóðleikhúsið býður nemendum unglingadeildar á einleikinn Velkomin heim!

Vala Rún fæddist á hrísgrjónaakri í Taílandi um miðja 20. öldina. Hún veit ekki hvenær hún á afmæli, bara að hún fæddist einhvern tímann á monsúntímabilinu. Hún kynntist aldrei föður sínum, missti móður sína sex ára og var meira og minna á eigin vegum eftir það. Árið 2018 stendur dóttir hennar á leiksviði í Þjóðleikhúsinu, fyrsta konan af asískum uppruna sem útskrifast af leikarabraut Listaháskóla Íslands.

Í leiksýningunni Velkomin heim! segir leikkonan María Thelma Smáradóttir sögu móður sinnar, fjallar um líf hennar í Taílandi og reynslu hennar þegar hún kom fyrst til Íslands fyrir 26 árum.

Völu Rún fannst hún aldrei eiga heima neins staðar í Tælandi. Á Íslandi leið henni eins og hún væri komin heim, og þó þekkti hún hér engan fyrir og talaði ekki tungumálið. Hvað er það að eiga heima einhvers staðar? Hvað er heimaland?

Meira

Klukkan

(Fimmtudagur) 14:00 - 15:00

Staðsetning

Hjálmaklettur

Skipuleggjandi

Þjóðleikhúsið

  • Fannst þér síðan hjálpleg ?
  •    Nei
Grunnskólinn í Borgarnesi
433-7400
X
X