Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Grunnskólinn í Borgarnesi
   Gunnlaugsgötu 13
   310 Borgarnes
   skoli@grunnborg.is
  Skrifstofa: 437 1183
  437 1229
  Fax: 437 2283
  Tómstundaskóli: 437 2035
Atburðadagatal
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
Fyrri mánuður
janúar 2012
Næsti mánuður
Menntagátt - fréttir
Menntagátt - á döfinni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

25. janúar 2012 10:41

Slæm veðurspá

Ef veðurspá gengur eftir í nótt og í fyrramálið má búast við vonskuveðri og slæmri færð í fyrramálið. Því má búast við að einhver, jafnvel veruleg, röskun verði á skólastarfi. Því er áréttað að það er á valdi forráðamanna að ákveða hvort börn eru send í skólann, en skólahaldi er aldrei aflýst. Eins má reikna með að mikið álag verði á símakerfi og því er bent á að senda má tilkynningar um forföll í tölvupósti, hvort heldur sem er á skólastjóra, kristgis@grunnborg.is eða ritara, sigga@grunnborg.is . En vonandi verður minna úr veðri en látið er í veðri vaka.

meira...
25. janúar 2012 03:16

Frá Ljósmyndastofunni Mynd

Minnum á myndatöku hjá Grunnskólanum í Borgarnesi

Myndataka fer fram miðvikudaginn 1. febrúar

Allir  myndaðir í 1.- 4.-7. og 10. bekk

Við myndum hópmyndir af viðkomandi bekkjum, einstaklingsmyndir af öllum í viðkomandi bekkjum.  Þegar þessu er lokið fara viðkomandi myndir inn á vef ljósmyndastofunnar, með aðgangslykli skólans, þar getur fólk skoðað, valið og pantað. Hverjum og einum er síðan frjálst að kaupa eftir hans / hennar hentugleik. Engin greiðsla fer fram áður og engin innheimta á sér stað í skólanum, eingöngu um leið og pantað er á vefnum.  Frjálst val.

Hópmynd hjá okkur kostar það sama og undanfarin ár, kr: 2500.- hún er í stærðinni 20x25cm með nöfnum allra sem á myndinni eru.

Algengasta myndapöntun er sú sama og var í fyrra og kostar það sama núna kr: 2000.- í henni er innifalið eftirfarandi 1. mynd 13x18cm, 1.mynd 9x12cm og síðan fjórar passamyndir.

Vinsamlegast athugið að vefurinn er ljósmyndavefur og öllum sem hafa aðgangsorð skólans opinn.

Eftir myndatökuna tekur við vinnsla á myndunum, hún getur tekið tvær vikur, lykill vegna skólans verður sendur öllum þegar myndirnar eru tilbúnar á vefnum.

Með kveðju

Fh. Mynd ljósmyndastofu

Bjarni Jónsson

 

meira...
19. janúar 2012 02:19

Söngkeppni

Á miðvikudaginn 11. janúar fór fram söngkeppni nemenda í 5. – 7. bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi. Keppnin fór fram í Félagsmiðstöðinni Óðal. Það var Snæþór Bjarki Jónson í 6. bekk sem sigraði. Í öðru sæti voru þær Ingibjörg Rósa Jónsdóttir og Hrafnhildur Tinna Ólafsdóttir úr 5. bekk og í þriðja sæti voru þær Arna Jara Jökulsdóttir, Sóley Ásta Orradóttir og Margrét Steinunn Ingadóttir einnig úr 5. bekk.  Á vef nemendafélagsins er hægt að sjá myndir og myndbönd frá keppninni

 

meira...
18. janúar 2012 09:42

Námsráðgjöf

Elín Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hefur hafið störf við skólann og er hún með viðveru á mánudögum. Nemendur geta leitað til hennar með öll þau málefni sem liggja þeim á hjarta. Námsráðgjöfin er þjónusta fyrir nemendur skólans og fer fram í trúnaði. Einnig geta foreldrar leitað til Elínar. Hægt er að panta viðtalstíma hjá Sigríði Helgu skólaritara, umsjónarkennurum eða í tölvupósti (elin@menntaborg.is)

 

meira...
16. janúar 2012 01:47

7. bekkur í skólabúðum

Nemendur 7. bekka skólans verða í Skólabúðunum á Reykjum við leik og störf þessa viku. Eru þeir þar með jafnöldrum úr samstarfsskólum auk Norðlingaskóla.  

meira...
12. janúar 2012 10:17

Söngkeppni Óðals

 Í kvöld, fimmtudag, fer fram söngkeppni 8.-10. bekkja Í Óðali. Hefst keppnin kl. 20. Sigurvegari þessarar keppni mun taka þátt í söngkeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi inna tíðar. Allnokkrir hafa skráð sig til keppni og er ekki að efa að allir keppendur munu leggja sig fram. Allir velkomnir að koma og fylgjast með.

meira...
5. janúar 2012 08:59

Heimsókn töframanns

Í gær fengu nemendur 1.-4. bekkjar góða heimsókn en þá kom Kristinn Gauti Gunnarsson, ungur og efnilegur töframaður af Akranesi, í heimsókn. Sýndi hann nemendum listir sýnar, þeim til mikillar  ánægju. Þótti þeim hér mikil undur á ferð. Eru honum færðar þakkir fyrir komuna. Þess má geta að Kristinn Gauti er dóttursonur Mummu Lóu kennara hér við skólann.

meira...
4. janúar 2012 11:33

Matseðill fyrir janúar

Það má finna matseðil fyrir janúar með því að smella hér. 

meira...